Jæja, ég fór í dag og keypti endurnýjun á DDV-medlemskortið
mitt.

Ég er búin að vera svo hryllilega slöpp við þetta alveg
frá því fyrir jól, tekið stuttar rispur og étið svo eins og svín
inná milli. En núna verður þetta tekið af hörku. Allavegna fram að
afmælinu mínu. Helst samt fram yfir prófin, en við sjáum bara til.
hehe

Svindlið hefur samt ekki tekið rosalega mikinn toll, ég hef bara
þyngst um 900 gr, en það má samt ekki gleyma að ég væri búin að
léttast um 7-8 kg ábyggilega í viðbót ef ég hefði ekkert
svindlað.
Núna er það s.s harkan sex bara, var 81.7 kg í vigtuninni í dag og
svo bara krossum við fingur fyrir næstu vigtun.
Ég er annars ennþá í skólanum, það er ógeðslega gaman og á líka
geggjað fallegan kærasta sem ég elska útaf lífinu, það er rosalega
gaman að vera ástfanginn. Ég er að leita að sumarvinnu og er líka
að vinna á hrafnistu... ef einhv. hefur áhuga á svona daglega
lífinu mínu, sem er reyndar ferlega svarthvítt hehe.
eníhú. bæbæ.